Við tökum persónuvernd og friðhelgi einstaklinga mjög alvarlega. Þessi trúnaðaryfirlýsing útlistar hvernig upplýsingum er safnað við notkun þessarar vefsíðu, hvernig upplýsingarnar eru geymdar og hvernig þær eru nýttar.
Við notum IP-tölur notenda til að greina vandamál á vefþjónum okkar og hafa umsjón með vefsíðum okkar. Þegar þú notar þennan vef verða til upplýsingar um heimsóknina. Akta sjóðir hf. miðlar þeim ekki til annarra nema samkvæmt lagaskyldu til eftirlitsaðila.
Persónuupplýsingarnar sem við söfnum eru meðal annars nafn og netfang. Akta sjóðir hf. notar þessar upplýsingar til að bæta þjónustu, halda utan um fyrirspurnir o.þ.h. Gögnin sem safnað er eru geymd á vefþjóni í að hámarki 1 ár. Notendur geta hvenær sem er óskað eftir því að upplýsingar um þá verði fjarlægðar.
Vafrakökur (e. cookies) eru notaðar til að telja heimsóknir á vefinn og til að þekkja aftur fyrri notendur. Akta sjóðir hf. notar vafrakökur sparlega og af ábyrgð. Notendur geta sjálfir stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim alfarið.
Akta sjóðir hf. notar Google analytics til vefmælinga. Í hvert sinn sem vefurinn er heimsóttur eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning heimsóknar, leitarorð sem notuð eru til að finna vefinn, frá hvaða vef er komið og gerð bæði vafra og stýrikerfis þess sem heimsækir vefinn.
Upplýsingarnar sem safnað er eru notaðar til að þróa og bæta vefinn svo hann verði aðgengilegri og þægilegri í notkun. Engum öðrum upplýsingum um hverja komu er safnað. Upplýsingarnar sem safnað er eru ekki tengdar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.
Vefurinn notast við svokölluð SSL-skilríki. Það þýðir að öll samskipti eru yfir dulritað burðarlag sem gerir gagnaflutning í gegnum hann öruggari.
SSL skilríki koma í veg fyrir það að þriðji aðili komist yfir gögn, s.s. lykilorð, sem send eru í gegnum vefinn. Upplýsingar sem sendar eru milli notenda vefmiðlara eru dulkóðaðar með SSL skilríkjunum. Þannig skila gögnin sem flutt eru á milli sér á öruggan og réttan máta.
Notendur geta skráð sig á póstlista hjá Akta sjóðir hf. Netföngin eru vistuð hjá Akta sjóðir hf. og eru einungis vistuð í þeim tilgangi að senda út upplýsingar um Akta sjóðir hf. til þeirra sem skrá sig á listann. Neðst í hverjum pósti sem sendur er út til notenda er tengill sem hægt er að smella á til að segja sig úr áskrift.
Reglur Akta sjóðir hf. um öryggi notenda gilda ekki á vefjum utan hans. Vefir sem vísað er í af vef Akta sjóðir hf. eru utan ábyrgðar Akta sjóðir hf.
Akta sjóðir hf.
Borgartún 25, 8. hæð
105 Reykjavík
Kt: 430713-0940
Nafnlaus ábending
Vefur Akta notar vafrakökur til að safna upplýsingum um umferð á vefnum til að bæta upplifun notenda og vegna auglýsingabirtinga. „Nánar um vafrakökur“.
Í LAGI